Sebastían Jóhann og Hrafnhildur Helga
    <language>is</language>
Gleðilegt nýtt ár!
      <description>Þótt fyrr hefði verið! En betra er seint en aldrei var víst einhvern tíman sagt. Héðan er allt gott að frétta, húsbyggingarnar ganga þó svo að veikindi hafa hægt aðeins á ferlinu en við flytjum á endanum! Sebastían er hreint út sagt mjög ánægður á leikskólanum sínu og er alltaf að leika Við Tryggva vin sinn, hann og Tryggvi ætla að fara að hittast fyrir utan leikskólann við fyrsta tækifæri og er Sebastían mjög spenntur fyrir því. Hrafnhildur er hin ánægðasta hjá henni Mundu sinni en hún er hjá dagmömmunni til klukkan 12 á meðan ég er í vinnunni. Og vill svo til að dagmamman er bara beint fyrir aftan leikskólann svo að það verður stuttur og þægilegur göngutúr þegar að því kemur. Einnig erum við búin að flytja lögheimilið og sækja um á sama leikskóla fyrir Hrafnhildi. Sebastían datt í desember á leikskólanum og skar efrivörina sína alla og þurfit að sauma 4 spor. En hann stóð sig auðvitað eins og hetja og er varla áð sjá á honum í dag að öll efrivörin hafi verið eitt gapandi sár. Hann talar orðið út í eitt og er nokkuð á því að þeir sem tala minna en hann séu "smábörn" ...... Hrafnhildi liggur þessi reiðinnar bísn á því að hún stóð upp 6.5 mánaða og gekk með viku seinna. í dag er hún aðeins farin að sleppa sér án þess að gera sér grein fyrir því. Svo það er alltaf partí á þessum bæ. Einnig segir daman orðið 6 orð. Og það allra besta sem hún veit er að fá að leika með stórabróður á gólfinu, en hann er einmitt rosalega góður við hana flest alla daga. Ég er í þessum skrifuðu orðim að vinna í því að setja inn bæði myndir og myndbönd á síðuna. </description>
Ótitlað
      <description>Heill hellingur af nýjum nóvembermyndum komnar á síðuna. </description>
Kominn tími til ....
      <description>Það er nú kominn tími til að hún mamma uppfæri bloggið hjá okkur en hún er rétt í þessu að hlaða inn fullt af myndum á síðuna svo endilega kíkið þangað og sjáið nýju myndirnar af okkur systkinunum. Ferð til Flórída var auðvitað algjört æði og vorum við bæði tvö algjörir englar á leiðinni út en vorum við frekar svekkt yfir því að sjónvarpið í vélinni virkaði ekki á leiðinni út, en Sebastían hafði verið svo rosalega spenntur fyrir að fá að sjá Simpson í vélinni! Millilentum við í New York og gistum eina nótt, eða það mætti segja hálfa nótt þar sem að við vorum farin af hótelinu um hálf 4 um morguninn til að ná flugi klukkan 6. Það var sko algjör lúxus að vera þessar 3 vikur út og slappa af í sólinni og hitanum en hitastigið fór ekki nema einu sinni undir 30°C. Svo keyrðum við eitt kvöldið upp til Sanford til að hitta Ásberg og Bryndísi og eyddum deginum með þeim áður en við sóttum ömmu Sigrúnu á flugvöllinn en hún kom og var með okkur úti í eina viku. Svo eftir að amma fór heim skellti fjölskyldan sér upp til St. Augustine - þar sem mamma og pabbi bjuggu - til að njóta dagsins og skoða. Mömmu og pabba fannst voðalega gaman að kíkja í litla bæinn sinn aftur en svo far ákveðið að kíkja á ströndina þó svo það hafi ekki verið neitt gasalega mikið strandarveður en Sebastían langaði að stinga tánum í sjóninn en hann reyndist vera mjög kaldur þennan daginn! Sebastían stækkar og dafnar og eykst við orðaforðann hjá honum með hverjum deginum sem líður. Hann er byrjaður á nýja leikskólanum í Hafnarfirði og finnst algjört æði að vera með stóru strákunum - hann er næst yngstur á deildinni - og leynir það sér ekki á stælunum að hann eyði tíma með eldri börnum. Hrafnhildur stækkar hratt, í rauninni alltof hratt, enda varð daman 6 mánaða núna í byrjun mánaðarins. Hún hefur nú setið sjálf í um einn og hálfan mánuð, farin að skríða þó svo hún eyði mestum tímanum í að reyna að setjast upp aftur og svo standa upp. En hún byrjaði hjá dagmömmu á fimmtudaginn þar sem mamman er að fara að vinna hálfan daginn frá og með mánudeginum. </description>
Nýjar myndir
      <description>Bara að senda inn tilkynningu um það að það eru nýjar myndir á leið inn í albúmið :)</description>
Matur
      <description>Hrafnhildur fékk sína fyrstu máltíð í dag en hún hefur verið að verða meira og meira óvær undanfarið og í sífellu að drekka. Og sást strax ágætis munur á henni eftir máltíðina en hún gekk mjög vel. Daman bara opnaði muninn og smjattaði á því sem hún fékk og lítið sem ekkert skilaði sér út aftur. Og var þetta bara nokkuð þrifaleg máltíð. Einnig vorum við að kveikja á því að Hrafnhildur er að verða 10 vikna á morgun!!Sebastían nýtur sín í botn á leikskólanum núna þegar nokkrir af krökkunum eru farnir í frí og lætur fóstrurnar stjana við sig. En Birgitta deildarstjórinn hans talar um að hún megi varla opna munninn án þess að hann endurtaki það sem hún segir.</description>
Nýjar myndir
      <description>Vildum bara láta vita að það eru komnar nýjar myndir í albúmið.</description>
Kvef og rúll á byrjunarstigi
      <description>Þá er kvefið loksins að minnka hjá okkur mæðgunum og hefur litla damna staðið sig eins og hetja í þessu öllu saman, lítið sem ekkert kvartað og sofið á nóttinni eins og hún er vön þó svo að snörlið í henni haldi vöku fyrir mömmunni sem er eilíft að athuga hvort að ekki sé allt í lagi hjá dömunni. Svo virðist sem að daman sé að flýta sér einhver reiðinnar ósköp! En hún byrjaði í gær að lyfta sér af bakinu upp á hliðina og rúllaði sér svo rólega til baka á bakið aftur. Endurtók hún svo leikinn aftur í morgun, svona rétt til að grobba sig við pabba sinn. Rúllaði sér á hliðina og brosti út að eyrum áður en hún lagðist aftur á bakið. </description>
Skírn
      <description>Þá er Hrafnhildur Helga komin formlega með nafn og þessi síða því orðin opinber eða svona hér um bil, verður það á morgun þegar mamma er búin að setja inn myndirnar og senda slóðina á alla. En skírnin gekk í alla staði mjög vel. Sr. Lena Rós Mattíasdóttir skírði og leið Hrafnhildi mjög vel í athöfninni, dormaði og vaknaði í raun og veru ekki fyrr en sr. Lena skvetti á hana vatni. Og svo um leið og myndatakan byrjaði byrjaði hún að kvarta. Veislan gekk í alla staði vel og vonum við að gestirnir hafi verið ánægðir með hana líka. Sebastían var ekki í myndatökustuði og lét sig vanta í flest allar myndatökurnar. En eitthvað náist af myndum af honum  Myndir munu koma inn á morgun.</description>
Ofnæmislæknir og lítil frænka
      <description>Hrafnhildur Helga fór í morgun til ofnæmislæknis, átti að vísu ekki að fara fyrr en á morgun en það lostnaði tími hjá lækninum í dag svo við skelltum okkur niður á Hring. Var hún ofnæmisprófuð en líkt og hjá Sebastían kom það allt úr neikvætt, en læknirinn var sammála okkur að öll einkennin hljóma mjög líkleg sem mjólkuróþol. En mamman fattaði á leiðinni að þær mæðgur væru þátttakendur í fæðuofnæmisrannsókn uppi á lansa og munu þeir sjá um framhaldið. Svo núna sitjum við bara og bíðum eftir sambandi frá þeim. Já, við fengum enn eina litla frænku 20 júní í Danmörku en Martin og Stine fengu dömu svo að Emilia  Rute er orðin stóra systir. Til hamingju öll með dömuna.</description>
Krílahittingur
      <description>Í dag skellti Hrafnhildur sér með mömmu í krílahitting og voru 9 mömmur sem mættu og 10 kríli og var voðalega gaman hjá okkur öllum. Við krílin vorum alveg til fyrirmyndar og nánast enginn grátur. En það má svo sannarlega segja að við stelpurnar erum í meiri hluta en það voru bara 2 strákar sem komu. Hlökkum til að mæta í næsta hitting. Það er búið að skella krílamyndum inn á síðuna sem mamma fékk hjá Lindu - mömmu Júlíu Lindu sætu skvís :)</description>
Mjólkuróþol og lítil frænka
      <description>Nú þegar stóri bróðir er að verða laus við mjólkuróþolið sitt, þ.e. þolir orðið allt nema hreinar mjólkurvörur, er litla daman að öllum líkindum með mjólkuróþol. En hún haði verið strax sett á soya þurrmjólk og gekk allt vel, en þegar foreldrarnir ákváðu að prufa venjulega þurrmjólk fór allt í mínus og daman varð óvær, grét mikið og svaf skringilega ásamt sem að hægðirnar hjá henni fóru allar í mínus. Var því skipt aftur yfir í soya mjólk og varð daman strax á fyrsta degi allt annað barn en hún hafði verið undanfarna daga. Er því það næsta á dagskrá að ná í ofnæmislækninn hans Sebastíans og fá tíma fyrir Hrafnhildi.Annars vildum við segja til hamingju til hans Magnúsar frænda og Simone með fæðinguna á litlu sætu frænku henni Clöru. Afi Klemens sendi okkur myndir af henni og er hún rosalega lítil og sæt. En pabbi rétt missti af því að fá hana í afmælisgjöf en hún fæddist klukkan 3 um nóttina 11 júní. </description>
Systkinasíða
      <description>Mamma og pabbi ákváðu að það væri miklu betra að setja saman eina síður fyrir okkur systkinin þar sem að það verða jú sömu myndirnar alltaf hjá okkur og þau nenna ekki að vera að flokka í sundur myndirnar í bæði albúmin svo að þessi síða kom upp úr krafsinu og erum við bæði nokkuð ánægð með það. En þessi síða verður að vísu ekki gerð opinber alveg strax, eða fyrr en eftir 29. júní þegar Hrafnhildur fær formlega nafn, en þangað til er nafnið leyndó en við treystum því að Stígur kjafti ekki frá en hann komast að nafni dömunnar þegar það var stofnuð síða fyrir hana. Við munum samt halda áfram að hafa okkar eigin síður en þær kannski bíða frekar eftir því þegar við verðum eldri og viljum nota þær sjálf. </description>